|
Frítt í sund fyrir atvinnulaust fólk |
|
Tekið af vef Reykjavíkurborgar: Frítt í sund og á bókasöfn fyrir atvinnulaust fólk Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti einróma á fundi sínum í dag tillögu borgarfulltrúa Vinstri Grænna um að atvinnulausir Reykvíkingar og fólk sem nýtur fjárhagsaðstoðar hjá Reykjavíkurborg fái frían aðgang að sundstöðum borgarinnar og frí notendakort í Borgarbókasafni Reykjavíkur og útibúum þess til ársloka 2010. Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri, sagði á fundi borgarstjórnar í dag að með samþykkt tillögunnar væri meðal annars verið að bregðast við óskum verkalýðsfélaganna um að Reykjavíkurborg veiti þessum hópi umrædda þjónustu endurgjaldslaust. Rannsóknir sýna að atvinnuleysi getur haft neikvæðar heilsufarslegar og félagslegar afleiðingar í för með sér fyrir fólk. Þegar einstaklingar missa vinnuna raskast jafnvægi í daglegu lífi þeirra töluvert. Það er samfélaginu til góða að koma til móts við þarfir þeirra sem eru án atvinnu með því að bjóða þeim upp á fjölbreytt virkniúrræði. Sund og almenn heilsurækt, heimsóknir á bókasöfn og önnur afþreying stuðla að aukinni þátttöku í samfélaginu og bættum lífsgæðum. Nánari upplýsingar um fyrirkomulag verður hægt að nálgast á þjónustumiðstöðvum velferðarsviðs Reykjavíkurborgar strax í næstu viku. |