sundlaugar.is
Borði

Forsíða
Vesturbæjarlaug lokuð

 

Vesturbæjarlaug er lokuð vegna viðhalds en opnar aftur mánudaginn 14. júní kl 06:30. Fleiri upplýsingar er að finna hér.

 
Sundlaug Grindavíkur

 

Það er búið að opna sundlaugina aftur eftir viðhald og þrif.

Helgina 5.- 6. júní verður sundmót í sundlauginni í tilefni bæjarhátíðar Grindavíkur sem heitir "Sjóarinn síkáti". Sundmótið hefst kl.10:00. Sundlaugin verður opin almenningi frá kl. 14:00-20:00 á laugardeginum og kl. 08:00-18:00 á sunnudeginum

Meiri upplýsingar um sundlaug Grindavíkur eru að finna hér.

 
Handklæðisdagurinn

 

Haldið var upp á hinn árlega handklæðisdag í dag, 25. maí en dagurinn hefur verið haldið hátíðlegur síðan 2001 í minningu rithöfundarins Douglas Adams.

Adams skrifaði hinn vinsæla bókarflokk Hitchhikers Guide to the Galaxy um raunir puttaferðalanga í geimnum og er þar haldið fram að nytsamlegasti hlutur sem hver puttaferðalangur getur haft á sér er einmitt handklæði.

Adams lést hinn 11. maí 2001 og strax tveim vikum eftir varð þessi óformlegi hátíðisdagur, þar sem fólk er hvatt til þess að ganga um með handklæði, til og hefur vaxið að vinsældum síðan.

 

 
Rauðir dagar framundan

  • 22. apríl, Sumardagurinn fyrsti
  • 1. maí, Verkalýðsdagurinn
  • 13. maí, Uppstigningardagur
  • 23. maí, Hvítasunnudagur
  • 24. maí, Annar í Hvítasunnu

Lesa meira...
 
Íþróttamiðstöðin á Kirkjubæjarklaustri

 

Íþróttamiðstöðin verður lokuð frá þriðjudeginum 25.maí- föstudagsins 4.júní.

 
« FyrstaFyrri12345678910NæstaSíðasta »

Síða 4 af 10
Borði

Flöskuskeyti Póstlisti

Borði
Borði

Hæsta meðaleinkunn

Síðustu athugasemdir

Mest skoðað

Opnar fyrst/Loka síðast

 


sundlaugar [at] sundlaugar.is - auglýsingar - tilgangur vefsins