sundlaugar.is
Borði

Forsíða
Vatnaveröld lokuð

 

Vatnaveröld-Sundmiðstöð verður lokuð frá kl. 19:00 miðvikudagskvöldið 30. júní 2010 vegna viðgerða á vatnslögnum. Gert er ráð fyrir að opna aftur kl. 12:00 fimmtudaginn 1. júlí 2010.

 
Opnunartími 17. júní

 

Opnunartími 17. júní

Lesa meira...
 
Ókeypis í sund

 

Frá www.rvk.is:

Ókeypis í sund í sumar fyrir börn og unglinga að 18 ára aldri.

Borgarráð samþykkti á fundi sínum í morgun að frá og með laugardeginum 19. júní - 31. ágúst næstkomandi yrði ókeypis í sund fyrir börn og unglinga að 18 ára aldri.

Jón Gnarr, borgarstjóri, segir þessa ákvörðun vera í samræmi við samstarfsyfirlýsingu Besta flokksins og Samfylkingarinnar en þar er þetta á lista yfir fyrstu verk nýs meirihluta. „Blautur borgari er glaður borgari, ” segir Jón Gnarr.

Íþrótta- og tómstundasvið Reykjavíkur rekur sjö sundlaugar, Árbæjarlaug, Breiðholtslaug, Grafarvogslaug, Kjalarneslaug, Laugardalslaug, Sundhöll Reykjavíkur og Vesturbæjarlaug. Ungmenni á öllum aldri ættu því að geta notið þess að fara frítt í sund í sundlaug sem næst sínu hverfi.

 

 
Sundlaugarpartý

 

Sundlaugarpartý á 17. júní í sundlaug Snæfellsbæjar, Ólafsvík.

Árgangar 2002-2000 mæting kl. 18:00-19:15
Árgangar 1999-1997 mæting kl. 19:30-20:45
Árgangar 1996-1994 mæting kl. 21:00-22:15

Frítt inn og þeir sem ætla ekki í sund mæti í náttfötum eða slopp!

 
Hlaðir í Hvalfirði

 

Félagsheimilið Hlaðir
Félagsheimilið Hlaðir er rólegur og fallegur staður við norðanverðan Hvalfjörð, um 45 mín akstur frá Reykjavík og 20 mín akstur frá Akranesi.

Sundlaugin er austan við félagsheimilið Hlaðir og eru búningsklefar og vatnsgufubað í kjallara félagsheimilisins auk útiklefa. Sundlaugin er 16,67 x 8 metrar og við hana er einnig barnavaðlaug með rennibraut og tveir heitir pottar. Meira..

 

 
« FyrstaFyrri12345678910NæstaSíðasta »

Síða 3 af 10
Banner Campaign

Flöskuskeyti Póstlisti

Borði
swimming in iceland on Facebook

Hæsta meðaleinkunn

Síðustu athugasemdir

Mest skoðað

Opnar fyrst/Loka síðast

 


sundlaugar [at] sundlaugar.is - auglýsingar - tilgangur vefsins