Heimilisfang Hlaðir í Hvalfirði Sími: 433 8980 Netfang:
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Tenglar: www.hladir.is
Afgreiðslutími Opnunartími sundlaugar verður alla daga frá 13.00 til 19.00 Nema á laugardögum er hún opin frá 13.00 til 21.00 ATH. Lokað á þriðjudögum. Sundlaugin lokar í lok ágúst 2010
Verð Fullorðnir: 400kr Börn (6-18 ár): 250kr Auka upplýsingar Sundlaugin er austan við félagsheimilið Hlaðir og eru búningsklefar og vatnsgufubað í kjallara félagsheimilisins auk útiklefa. Sundlaugin er 16,67 x 8 metrar og við hana er einnig barnavaðlaug með rennibraut og tveir heitir pottar. Hægt er að semja um leigu á sundlauginni í tengslum við leigu á húsinu. Félagsheimilið Hlaðir á Hvalfjarðarströnd Félagsheimilið Hlaðir Félagsheimilið Hlaðir er rólegur og fallegur staður við norðanverðan Hvalfjörð, um 45 mín akstur frá Reykjavík og 20 mín akstur frá Akranesi.
Félagsheimilið Hlaðir er með góðum veislusal/danssal sem tekur allt að 240 manns í sæti og hentar vel fyrir árshátíðir, veislur, ættarmót, fyrirtækjadaga, fundi, ráðstefnur, leiksýningar, tónlistarviðburði, handverksmarkaði, yogakennslu, fyrirlestra, kynningar, markaði og margt fleira. Salurinn er með stóru sviði og tjöldum, fallegum bar og rúmgóðu eldhúsi sem er vel tækjum búið. Hægt er að semja um aðgang að lauginni í tengslum við leigu á félagsheimilinu. Félagsheimilið er leigt út allt árið.
Tjaldsvæði að Hlöðum Að Hlöðum er stórt tjaldstæði fyrir tjöld, hjólhýsi, fellihýsi og tjaldvagna. Sér aðstaða fyrir tæmingu salerna frá húsbílum og tjaldvögnum.
Annað Margir þekktir staðir eru í nágrenninu svo sem Glymur í Botnsá, Harðarhólmi, Geirshólmi, Hallgrímskirkja í Saurbæ, Hallgrímssteinn, Vatnaskógur, Hvalstöðin og gönguleiðirnar um Síldarmannagötur og Leggjarbrjót. Stutt er í veiði, golf, kirkju og hótel.
Upplýsingar fást hjá staðarhaldara: Guðjóni Sigmundssyni síma: 660 8585 Félagsheimilið Hlaðir sími: 433 8877 Sundlaug Hlöðum sími: 433 8980 Heimasíða: www.hladir.is - Netfang:
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
|