|
Gvendarlaug hins góða Heimilisfang Á Klúku í Bjarnarfirði 510 Hólmavík Netfang:
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Tenglar: www.vestfirdir.is Afgreiðslutími Virka daga: 10:00-22:00 Helgar: 10:00-22:00 Verð Fullorðnir: 300 kr. Börn: 150 kr. (150 kr fyrir lífeyrisþega og ókeypis fyrir börn yngri en 6 ára) Auka upplýsingar Gvendarlaug hins góða á Klúku í Bjarnarfirði er rótgróin og gömul 25 metra útisundlaug. Við sundlaugina er náttúrulegur heitur pottur sem vekur mikla athygli og heitur lækur rennur við hlið laugarinnar. Laugin er opin allt árið, án gæslu á veturnar. "Enginn kaþólskur biskup er nefndur jafn oft í þjóðsögum og Guðmundur biskup góði og ávallt á jákvæðan hátt. Ævisögu Guðmundar má finna bæði í Sturlungu og Biskupasögum og er að minnsta kosti ein þeirra sagna beinlínis skrifuð til að ýta undir að hann yrði tekinn í heilagra manna tölu. Svo varð þó aldrei, en Guðmundur var þó lengi talinn dýrlingur af almenningi. Gvendarlaug á Klúku í Bjarnarfirði - ljósm. Sögusmiðjan Guðmundur góði hafði mikil kynni af Ströndum og Strandamönnum, allt frá því að hann varð skipreika í Skjaldabjarnarvík árið 1180 og ferðaðist þaðan fótbrotinn, „með leggjabrotin úti“, að Stað í Steingrímsfirði. Á flakki sínu undan ofríki veraldlegra höfðingja síðar á æfinni kom Guðmundur oft á Strandir og fylgdu honum þá hópar fátæklinga. Frægasta sagan af Guðmundi á Ströndum er af baráttu hans við ókindina Selkollu, sem hann kvað loks niður á Hafnarhólmi með sálmasöng og bænagjörðum. Guðmundur á einnig að hafa verið fenginn til að flæma tröll og aðra ómennska vætti úr Goðdal fram af Bjarnarfirði. Örnefni tengd Guðmundi góða eru mörg í Strandasýslu, flest tengd vatnsuppsprettum og þykir það vatn sem hann blessaði hafa lækningarmátt. Svo máttug var blessun hans yfir lind í Kálfanesi við Hólmavík að það vatn mátti bera yfir Steingrímsfjörð í prjónahúfu án þess að dropi færi til spillis. Sagnareki við Gvendarlaug - ljósm. Sögusmiðjan Gvendarlaug hins góða á Laugarhóli í Bjarnarfirði er eina heita baðlaugin á Ströndum sem nefnd er eftir Guðmundi. Í gömlum bókum segir að sæti hafi verið hlaðin umhverfis hana og hægt var að hleypa vatni úr henni að vild. Laugin var endurhlaðin á níunda áratugnum og er nú friðlýst. Sagt er að vatnið hafi lækningarmátt og sé sérlega heppilegt gegn augnsjúkdómum. Vatnið úr þessari helgu laug blandast nú í annað vatn sem notað er í sundlaugina sem byggð var 1947 og heitir eftir gömlu lauginni, Gvendarlaug hins góða." - www.vestfirdir.is
|