sundlaugar.is
Borði

Hólmavík Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

Heimilisfang
Hólmavík,
Sími: 451 3560

Netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Tenglar: www.holmavik.is 

Afgreiðslutími
Sumaropnun : Alla daga vikunnar frá kl. 09:00 - 21:00

Verð
Fullorðnir: 370 kr
Börn: frítt

 

Auka upplýsingar
Þann 17. júlí 2004 var tekin í notkun ný og glæsileg  25 metra útisundlaug á Hólmavík. Við sundlaugina eru einnig tveir heitir pottar og barnavaðlaug auk þess sem þar er að finna heitt og gott gufubað innandyra. Sundlaugin er lögleg keppnislaug og hefur verið vel sótt allt frá opnun hennar, jafnt af ferðamönnum sem heimamönnum.

Sundlaugin er staðsett rétt ofan við tjaldsvæðið og við hliðina á Upplýsingamiðstöðinni í anddyri félagsheimilisins. Bæði heimamenn og ferðafólk hafa lýst yfir mikilli ánægju með laugina, en sundlaug var í tugi ára fjarlægur draumur margra Hólmvíkinga. Auk sundlaugarinnar og þjónustubyggingar við hana var reist íþróttahús sem var tekið í notkun í desember 2004 og er mikið nýtt af heimafólki.

 


 
Borði

Síðustu athugasemdir

Hæsta meðaleinkunn

Síðast breytt

Mest skoðað


sundlaugar [at] sundlaugar.is - auglýsingar - tilgangur vefsins