|
Bergheimar Heimilisfang Hafnarberg 41 815 Þorlákshöfn Sími: 483 3807 Netfang:
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Tenglar: www.olfus.is Afgreiðslutími Virka daga: 07:00 - 21:00 Helgar: 10:00 - 17:00 Verð fullorðnir stakt gjald kr. 400 börn að 16 ára frítt 10 miða kort fullorðnir kr. 2800 30 miða kort fullorðnir kr. 6000. sundföt kr. 350 handklæði kr.350 sund + sundföt+ handklæði kr. 800. Auka upplýsingar Í Íþróttamiðstöðinni er 25 metra úti sundlaug, tveir heitir pottar, vaðlaug og vatnsrennibraut. Sundlaugin er notuð undir kennslu fyrir Grunnskóla Þorlákshafnar, einnig er kennd sundleikfimi og sundnámskeið. Sundleikfimi er á mánudögum og fimmtudögum kl. 18:00 Sundnámskeið eru í maí og júní. Ljósabekkur er opinn á opnunartíma sundlaugar. Miklar endurbætur hafa farið fram á íþróttamannvirkjum og sundlaug í Þorlákshöfn undanfarið ár (2008). Allt nema íþróttasalurinn sjálfur var rifið og er allt nýtt. Ný sundlaug, pottar, innilaug, þreksalur, þjónustumiðstöð, þolfimisalur og fl. Íþróttahús Í Íþróttamiðstöðinni er íþróttasalur, þolfimisalur og þreksalur. Íþróttasalurinn er notaður undir kennslu fyrir Grunnskóla Þorlákshafnar auk þess er hann aðal æfingasalur fyrir Ungmennafélagið Þór og Knattspyrnufélagið Ægi. Í íþróttasalnum er stundað m.a. körfuknattleikur, fimleikar, badminton, frjálsar íþróttir og knattspyrna. Þreksalur Þreksalur er rekin af Styrk hf. heilsurækt. Salurinn er ágætlega búinn tækjum. Opnunartími þreksalar frá kl. 07:00 til 22:00 virka daga og frá kl. 10:00 til 18:00 um helgar. Þolfimisalur Í þolfimisalnum eru stundaðar ýmsar íþróttir s.s. aerobic, dans, pallaleikfimi og bodypump.
|