sundlaugar.is
Borði

Sundhöll Reykjavíkur Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

 

Heimilisfang
v/Barónsstíg
101 Reykjavík
Sími: 411 5350
Fax: 551 7650

Netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Tenglar Vefsíða ÍTR

Afgreiðslutími
sumar (1. apríl):
Mánudagar-fimmtudagar: 06:30-22:00
Föstudagar: 06:30-20:00
Laugardagar: 08:00-16:00
Sunnudagar: 10:00-18:00 

Það er skólasund í barnalauginni nær samfellt
frá 09:30 - 15:30 mánd. - fimmtud.
sundæfingar frá 17:00 - 18:00 mán. og
mið. frá 17:00 - 19:00
þri. og fimm. föstudaga er laugin laus frá kl. 15:00, svo er opið um helgar.

 

Verð
Börn: 100 kr
Fullorðnir: 450 kr

10 miða kort barna: 900 kr
10 miða kort fullorðnir: 3.000 kr
10 miða kort fullorðnir gufa: 3.600 kr
6.mán kort barna: 6.000 kr
6.mán kort fullorðnir: 15.000 kr
Árskort barna: 10.000 kr
Árskort fullorðnir: 28.000 kr
Árskort Gufa: 34.000 kr
Gufa stakt gjald: 550 kr

Leiga á handklæði: 400 kr
Leiga á sundfötum: 600 kr
Tilboð - sund,handklæði, sundföt: 1.000 kr
Tilboð - Sauna,handklæði, sundföt: 1.100 kr

   

 

 

 

 

 

 

 

Auka upplýsingar
Laug: 25m x 10m, 4 brautir, 9m - 4m á dýpt, innilaug.
ATH! Meðan á skólasundi stendur fá börn aðeins aðgang að lauginni í fylgd fullorðinna.

Arkitekt: Guðjón Samúelsson
Byggingarár: 1929-1937
Saga byggingarinnar
Í æviminningum Knud Zimsen, bæjarverkfræðings 1902, kemur fram að hann gerði tillögu að byggingu yfirbyggðrar sundlaugar í Reykjavík, tillagan fékk ekki hljómgrunn í bæjarstjórn Reykjavíkur.

Árið 1927 kemur  Jónas frá Hriflu með þá hugmynd að ríkissjóður leggði fram 50 þúsund krónur í Sundhallarbyggingu gegn því að bæjarsjóður legði fram jafn háa upphæð, tilllagan var ekki samþykkt.

Árið 1928 bar ríkisstjórnin fram frumvarp um byggingu Sundhallar í Reykjavík, frumvarpið hljóðaði uppá að ríkið leggði fram 100 þúsund krónur og að borgin legði fram annað eins auk lóðarinnar.

SundhöllFyrsta tillaga Guðjóns Samúelssonar var bygging í burstabæjarstíl laugin átti að vera þrískipt, ein laugin átti að vera fyrir börn, önnur stærri fyrir íþróttamenn, sú þriðja átti að vera sjólaug. Hætt var við að byggja eftir fyrstu tillögu Guðjóns, en árið 1929 var byrjað á að byggja Sundhöllina í þeirri mynd sem hún er í dag. Í nokkur ár gekk hvorki né rak með bygginguna vegna fjárskorts. Sundhöllin var loksins tekin í notkun 24. mars 1937.

STÆRÐ BYGGINGAR: 2.661,8 m2
Rúmmál: 9.590,4 m3

STÆRÐ LÓÐAR: 5.250 m2
Fjöldi bílastæða: 30

AÐALLAUG      
L: 25 m., B: 10 m.    
Mesta dýpi 4,00 m., 
Flatarmál laugar er 250 m2      
Heildarvatnsmagn 780 m3      
Hitastig 29°C

BARNALAUG
L: 7,2 m., B: 10 m.              
Mesta dýpi 1,10 m.,
Flatarmál laugar er 72 m2              
Hitastig 32°C

HEITIR POTTAR          
Nuddpottur                  
Hitastig 37-39°C     
16,7 m² 17,6 m³

Heitur pottur      
Hitastig 40-42°C      
10,4 m² 10,9 m³

EIMBAÐ      
Opnað árið 2001                                                      
6,9 m²   17,3 m³                           

Leiktæki
Tvö stökkbretti eru í lauginni það lægra er 1,0 m frá vatnsyfirborði það hærra 2,75 m frá vatnsborði.  Stökkpallurinn er opinn (ef aðstæður leyfa) mánudaga, þriðjudaga og fimmtudaga kl. 19:30 - 21:00. Föstudaga 17:00 - 19:00. Laugardaga og sunnudaga kl. 12:00 - 15:00.

Forstöðumenn frá upphafi      
Ólafur þorvarðarson          1937-1942
Sigríður Sigurjónsdóttir     1942-1945
Þorgeir Sveinbjarnarson     1945-1971
Hermann Hermannsson         1971-1975
Ingibjörg Sigurgeirsdóttir
og Lilja Kristjánsdóttir     1975-1983
Kristján Ögmundsson          1983-1986
Stefán Kjartansson          1986-1993
Bjarni Kjartansson          1993-1998
Björg Snjólfsdóttir          1998-1999
Gísli Jensson               1999-2005
Óttarr Hrafnkellsson          2005-2005
Katrín Lovísa Irvin          2005-

 

 

 
Borði

Síðustu athugasemdir

Hæsta meðaleinkunn

Síðast breytt

Mest skoðað


sundlaugar [at] sundlaugar.is - auglýsingar - tilgangur vefsins