|
Sundlaugin Versölum, Íþróttamiðstöðin Versalir, Íþróttafélagið Gerpla, Salalaug Heimilisfang Versölum 3, Kópavogi Sími: 570-0480 Netfang:
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Tenglar: sund.kopavogur.is/versalir/, www.kopavogur.is Afgreiðslutími Þjónustutími frá 1. september 2010 Mánudaga - fimmtudaga kl. 06:30 - 21:00 Föstudaga kl. 06:30 - 20:00 Laugar- og sunnudaga kl. 10:00 - 19:00
Helgidagar samkvæmt auglýsingum og upplýsingum hér á vefnum. Actic heilsuræktin er opin til kl. 22 mánudaga til fimmtudaga, en aðra daga á sama tíma og sundlaugin. Nánari upplýsingar á heimasíðu Verð Gjaldskrá sundlauga Kópavogsbæjar Gildir frá 1. febrúar 2010 | | | | | | Börn á aldrinum 6-17 ára | | | | Stakt gjald | Kr. 120 | Kr. 120 | | 10 punkta kort | Kr. 900 | Kr. 90 | | 30 punkta kort | Kr. 2.250 | Kr. 75 | | 60 punkta kort | Kr. 3.600 | Kr. 60 | | Árskort | Kr. 7.500 | | | Punktakort gilda í 2 ár frá útgáfudegi | | Fullorðnir á aldrinum 18-66 ára | | | | Stakt gjald | Kr. 450 | Kr. 450 | | 10 punkta kort | Kr. 3.700 | Kr. 3.70 | | 30 punkta kort | Kr. 8.400 | Kr. 280 | | 60 punkta kort | Kr. 12.500 | Kr. 208 | | Árskort | Kr. 24.000 | | | Árskort námsmanna | Kr. 20.000 | | | Punktakort gilda í 2 ár frá útgáfudegi | | Eldri borgarar 67 ára og eldri | | | | Stakt gjald | Kr. 120 | Kr. 120 | | 10 punkta kort | Kr. 900 | Kr. 90 | | 30 punkta kort | Kr. 2.250 | Kr. 75 | | 60 punkta kort | Kr. 3.600 | Kr. 60 | | Árskort | Kr. 7.500 | | | Punktakort gilda í 2 ár frá útgáfudegi | | Leiga sundföt og handklæði | Kr. 600 | |
Þjónusta og aðstaða Auka upplýsingar Aðalsundlaugin er 25x15m að stærð og dýptin er frá 100 til 160 sm. Í sundlauginni eru 6 keppnisbrautir afmarkaðar með brautalínum. Oftast eru fjórar þeirra uppi, ætlaðar fyrir skólasund, sundiðkun almennings og sundæfinga. Á almenningstímum eru tvær brautir ætlaðar til leikja og sundiðkunar. Iðulaugin er ein af aðalsmerkjum Versala laugarinnar. Þar er að finna vatns og loftnuddsstúta fyrir kálfa, mjóbak/mjaðmir og bak/herðar. Í pottinum eru einnig þrír legubekkir með heilnuddi með upphituðu lofti. Innilaugin er 16,67x10m að stærð. Dýpt hennar er frá 0,75 - 0,90 sm. Hitstig laugarinnar er 33°- 34° og lofthitin í laugarsalnum er um 27°. Laugin er því tilvalin fyrir ungabörn og yngri sundgesti. Í laugarsalnum og í búningsklefum er að finna skiptiborð fyrir ungabörn. Við líkjum rennibrautinni okkar við fljót. Hún hefur þá sérsstöðu að við efri enda hennar er lítil laug/hylir sem er 34° heitur. Úr hylnum rennur fljótið niður brautina og endar í straumfljóti, sem rennur í kringum eyju sem er í lendingarlauginni. Þannig berst notandinn aftur að tröppum sem lyggja upp úr fljótinu. Í mannvirkinu er að finna tvo heita potta. Potturinn sem er næst útgöngudyrunum er um 38°, en heitari potturinn er um 42°. Í Vatnsorgelinu eru 40 vatnsstútar. Vatnið sprautast upp um stútana með misjöfnum krafti og því ná bunurnar mishátt upp í loftið.
|