sundlaugar.is
Borði

Seltjarnarneslaug Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

 

sundlaug seltjarnarnesi

Heimilisfang
Suðurstrond
170 Seltjarnarnes
Sími: 561 1551

Netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Tenglar: www.seltjarnarnes.is

Afgreiðslutími
Virka daga: 6:30-21:00
Um helgar: 8:00-18:00

 

Verð
Fullorðnir (frá 18 ára)            
Stakur: 400                                    
10 skipta: 2,900    
3ja mán.kort: 9,000    
1/2 árs kort: 14,000    
Árskort: 24,000
               
Börn (frá 6 ára)            
Stakur: 120                         
10 skipta: 800
Árskort: 10,000        
               
Leiga sundfata: 1.350 og 1.000 til baka        
Leiga handklæðis: 250        

 

 

 

Auka upplýsingar
Vatnið í lauginni kemur úr borholu í nágrenninu með mjög steinefnaríku vatni. Laugin er vinsæl hjá exemsjúklingum sem telja þetta vatn þurrka húðina minna en annað sundlaugarvatn.

  • Pottarnir eru 4 með hitastigi frá 37° uppí 44° og þar af einn með nuddi.
  • Það eru tvær sundlaugar, barnalaugin er með 35°heitu vatni og er notuð til sundnámskeiða yngri barna
  • og til afslöppunar, en 25 metra laugin er með 29°heitu vatni fyrir sundfólk, sundleikfimi og leikja stærri barna og unglinga.
  • Síðast en ekki síst er 3cm djúp vaðlaug með nokkrum leiktækjum fyrir þau yngstu og hitastigið er 37-38°.
  • Á útisvæðinu er einnig mjög gott eimbað. 
  • Fjórir búningsklefar, tveir stærri inni og tveir útiklefar með sér sturtu og salernisaðstöðu.
  • Að lokum er svo ágætis stór rennibraut. 

 

Í sundlaug Seltjarnarness er glæsileg aðstaða fyrir fatlaða einstaklinga.

Aðgangur klefans er þannig að segulkort er fengið í afgreiðslu sem opnar hann rafrænt og um leið og einhver er í klefanum logar rautt ljós á ganginum fyrir framan til merkis um að hann sé upptekinn. Eins er um öryggi að ræða því skynjarar segja til um hvort sé ekki örugglega hreyfing inni.

 

 

 


Hann er búinn 6 skápum og rúmgóðum sturtuklefa og salerni og sérstaklega hannaður með það fyrir augum að fatlaður einstaklingur getur komið með sína aðstoðarmanneskju óháð kyni.

 

 
swimming in iceland on Facebook

Síðustu athugasemdir

Hæsta meðaleinkunn

Síðast breytt

Mest skoðað


sundlaugar [at] sundlaugar.is - auglýsingar - tilgangur vefsins