sundlaugar.is
Borði

Ásvallalaug Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

 

Forstöðumaður er Björg Snjólfsdóttir

Heimilisfang
Ásvöllum 2
221 Hafnarfirði
Sími: 512-4050

Netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Afgreiðslutími
Virka daga 6:30-21:00
Laugardaga 08:00-18:00
Sunnudaga 08:00-17:00

Verðskrá
Fullorðnir: 340 kr. (1 stakt skipti)
Börn (5-17 ára): 110 kr. (1 stakt skipti)
Börn (0-4 ára): frítt
Aldraðir (67 ára+): frítt
Öryrkjar: frítt

10 miða kort - fullorðnir: 2.300 kr. (230. kr skiptið)
10 miða kort - börn: 680 kr. (680 kr. skiptið)

30 miða kort – fullorðnir: 6.300 (210 kr. skiptið)
30 miða kort – börn: 2.000 kr. (67 kr. skiptið)

6 mánaða sundkort: 9.350 kr.
6 mánaða fjölskyldukort ( gildir fyrir 2 foreldra og öll börn þeirra undir 18 ára aldri): 14.600 kr.

Leigður sundfatnaður/handklæði: 400 kr. stk.

Tenglar: www.hafnarfjordur.is

 

Auka upplýsingar
Ásvallalaug var vígð 6. september 2008 í Vallarhverfi í Hafnarfirði. Sundmiðstöðin er ein stærsta á landinu eða um 6.000 m². Þar er einnig heilsuræktarstöðin Hress í 600 m² rými, Ásmegin sjúkraþjálfun svo og féagsaðstaða Sundfélags Hafnarfjarðar og Íþróttafélagsins Fjarðar. Sundmiðstöðin skartar 50 metra sundlaug, 17metra barnalaug og 10metra vaðlaug fyrir yngstu kynslóðina með tilheyrandi leikföngum. Vatnsrennibraut, þremur heitum pottum og eimbaði. Utandyra eru heitir pottar og mjög góð sólbaðsaðstaða. Seinna munu bætast við útisundlaug, vaðlaugar, fleiri heitir pottar, rennibrautir, sauna og útiskýli. Starfsemin í Ásvallalaug er með fjölbreyttasta móti en þar má nefna auk hefðbundins skólasunds og sundæfingar félaganna, waterpolo, blak, æfingar köfunarfélaga, æfingar kajakræðara, námskeið fyrir verðandi og nýbakaðar mæður, námskeið í bættum sundstíl, ungbarnasund, vatnsleikfimi ofl. Með haustinu 2009 mun fjölbreytnin aukast enn frekar.


Barnalaugarnar eru tvær, vaðlaug og barnalaug (90-110cm djúp) þær eru um 32°C, hitastig sundlaugar er 28°C. Hitastigið inni er ávallt um 30°C.

 

 

 
Borði

Síðustu athugasemdir

Hæsta meðaleinkunn

Síðast breytt

Mest skoðað


sundlaugar [at] sundlaugar.is - auglýsingar - tilgangur vefsins