sundlaugar.is
Borði

Ylströnd Nauthólsvík Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

 

"The Beach of Reykjavik"

Heimilisfang
Ylströndin Nauthólsvík
Sími: 511-6630

Netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Afgreiðslutími
Ylströndin í Nauthólsvík er opin frá 15. maí til 31. ágúst og er opnunartími frá kl. 10.00-20.00 virka daga en um helgar er opið til kl.18.00 og til kl. 20.00 á góðviðrisdögum. Aðgangur að ströndinni, setlaugum, búningsklefum og salernum er ókeypis en greiða þarf 200 kr. fyrir að geyma föt í fatageymslu Ylstrandarinnar. Hitastig sjávarlónsins er um 18° - 20°C að meðaltali þegar það er blandað með heitu vatni. Löng vera í lóninu getur því valdið ofkælingu, sérstaklega þegar börn eiga í hlut. Athugið að sjávarlónið er aðeins hitað á opnunartíma. 

Verð
Aðgangur að strönd, heitum pottum og sturtum er ókeypis!
Leiga á handklæði 200 kr.
Geymsla á fatnaði 200 kr.

Tenglar
Koma bráðlega...

 

 

 

Auka upplýsingar

Ylströndin er í Nauthólsvík þar sem sjóbaðstaðurinn var áður.  Þarna er veitt heitu vatni úr hitaveitunni í tvo potta og auk þess í sjóinn í víkinni en hún hefur verið afmörkuð með garði að austanverðu til að takmarka vatnsskiptin.  Víkinn er þó opin út í voginn og gætir þar flóðs og fjöru og blandast sjórinn við heita vatnið.  Þarna myndast 1.500-4.000 m2 stórt lón allt eftir því hvort er flóð eða fjara.  Heiita vatnið er ekki blandað klór.  Í fjörunni er aðfluttur skeljasandur.  Ágæt aðstaða er til fataskipta í veglegu þjónustuhúsi.  Í húsinu er einnig sjoppa.  Gert er ráð fyrir því að fólk taki með sér fötin út eftir fataskiptin en þó er hægt að fá þau geymd gegn gjaldi.  Annar potturinn er á tröppunum framan við þjónustuhúsið.  Hitastig hans er 38 °C.  Hinn potturinn er í flæðarmálinu og er hitastig í honum 25-30 °C.  Sjálf víkin hefur breytilegt hitastig eða frá umhverfishita sjávarins upp í um 28 °C.   Dýpi í pottunum er um 0,5-0,7 m en dýpi í víkinni þar sem dýpst er er allt að 3,8 m þegar flóð er.  Svæðið er alltaf opið en þjónustuhúsið aðeins á sumrin, frá 15. maí til 15. september á milli kl 10:00 og 20:00.  Utan opnunartíma rennur ekkert heitt vatn í pottana og víkina.

Sumarið 2000 var tekin í notkun glæsileg Ylströnd í Nauthólsvík. Reistir voru voldugir sjóvarnargarðar og inn fyrir þá dælt gullnum skeljasandi. Innan garðanna er fallegt lón þar sem kaldur sjór og heitt vatn renna saman í eitt. Þessar aðstæður minna meira á strendurnar við sægrænt Miðjarðarhafið en vík í nyrstu höfuðborg heims við Norður-Atlantshafið. Markmiðið með þessum framkvæmdum var að gera Nauthólsvík að fjölbreyttu útivistarsvæði þar sem lögð er áhersla á útiveru, sólböð, sjóböð og siglingar líkt og tíðkaðist hér fyrr á árum.

Sumarið 2001 var tekin í notkun þjónustumiðstöð á Ylströndinni. Þar er búnings- og sturtuaðstaða fyrir baðgesti og þar er jafnframt hægt að kaupa léttar veitingar. Fyrir framan þjónustumiðstöðina er löng setlaug sem er um 30°-35°C heit. Í flæðarmáli strandarinnar er uppstreymispottur til hitunar á lóninu sem jafnframt er íverustaður. Þessi framkvæmd hefur mælst gríðarlega vel fyrir og ekki hægt að segja annað en að Ylströndin hafi slegið í gegn eftir að hún var opnuð. Ófáir hafa lagt leið sína þangað og flatmagað í sólinni á sólríkum sumardögum.

Góð aðsókn hefur verið að Ylströndinni og koma að meðaltali 120.000 gestir á hverju ári á ströndina. Það er því óhætt að segja að ströndin hafi fest sig í sessi sem paradís í borgarlandinu sem laðar að jafnt innlenda sem erlenda gesti.

Reglur
Börnum yngri en 8 ára er óheimill aðgangur nema í fylgd synds einstaklings, 14 ára eða eldri. Æskilegt er að fullorðinn einstaklingur hafi aðeins tvö börn í sinni umsjá á ströndinni. Gestir Ylstrandarinnar eru á eigin ábyrgð, öryggisgæsla er á svæðinu en ekki er boðið upp á barnagæslu. Reykingar, neysla áfengis, hundahald og umferð reiðhjóla og ökutækja er með öllu bönnuð á Ylströndinni. Gestir strandarinnar eru vinsamlegast beðnir um að virða þetta bann.

Bláflaggið
Evrópska úrskurðarnefndin fyrir Bláflaggið 2001 hefur gefið út að Ylströndin í Nauthólsvík hafi lagt fram gögn þess efnis að baðstaðurinn uppfylli allar kröfur sem gerðar eru til baðstranda sem fá að flagga Bláflagginu. Bláflaggið er trygging baðgesta fyrir góðu umhverfi. Það er örugg vísbending um hrein og örugg baðsvæði þar sem njóta má baða og útiveru auk þess sem það á að vekja vitund almennings um mikilvægi umhverfi sverndar.

 

 
Borði

Síðustu athugasemdir

Hæsta meðaleinkunn

Síðast breytt

Mest skoðað


sundlaugar [at] sundlaugar.is - auglýsingar - tilgangur vefsins