sundlaugar.is
Borði

Bláa Lónið - Blue Lagoon Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

 

Heimilisfang
Grindarvíkurvegi 5
240 Grindavík
Sími: 420 8800
Fax: 420 8801

Netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Tenglar: www.bluelagoon.is   

Afgreiðslutími og verð
Kíktu hér til að sjá núverandi verðskrá: http://www.bluelagoon.is/Badstadur/Opnunartimar-og-verd/

Fullorðnir: 4.500 kr

Börn yngri en 13 ára: Frítt í fylgd með forráðamönnum
Unglingar 14 - 15 ára: 1.150 kr.
Öryrkjar og eldri borgarar: 1.150 kr.

Handklæði: 800 kr.
Sundföt: 800 kr.
Baðsloppur: 1.150 kr.

 

Auka upplýsingar
Bláa lónið er fullkomið dekur fyrir líkama og sál og býður upp á spennandi möguleika fyrir gesti. Má þar nefna nudd og spa meðferðir sem fara fram bæði ofan í lóninu og innanhúss, eimböð, sauna og foss sem gefur endurnærandi axlanudd. Eitt af því sem gerir Bláa lónið svo sérstakt er umgjörðin - hrein náttúran og hraunið sem umlykja lónið sem helst 37-39°c heitt allt árið um kring. Það er einstök upplifun að slaka á í hlýju lóninu á meðan virku efni þess leika um húðina. Steinefnin veita slökun og koma jafnvægi á húðina, þörungarnir næra og mýkja og kísillinn hreinsar og gefur húðinni slétta og fallega áferð.

 

Í nýtískulegri búnings- og baðaðstöðu hafa gestir aðgang að Blue Lagoon sturtugeli og hárnæringu. Allir baðgestir fá afhent Blue Lagoon rakakrem sem er tilvalið að bera á húðina að baði loknu.

 

Betri stofan er heillandi kostur fyrir þá sem vilja meira næði. Þar er að finna einkaklefa, innilaug, setustofu og einkaverönd með útsýni yfir lónið.

 

Lava Restaurant & Bar er glæsilegur veitingastaður sem er byggður inn í hraunið og myndar heillandi umgjörð fyrir gesti.  Á Blue Café er hægt að fá fljótlega og holla rétti. Þar er einnig þráðlaus Internettenging.

 

Á Lagoon Bar á innilaugarsvæði er hægt að kaupa létta rétti með aðgangsarmbandinu og greiða við brottför.
Blue Lagoon verslunin býður upp á úrval Blue Lagoon húðvara sem og gjafavörur og minjagripi.
Bláa lónið er opið daglega frá 8-21 (1/6-31/8) og frá 10-20 (1/9-31/5). Gestum er heimilt að dvelja í lóninu í 45 mínútur eftir lokun.
www.bluelagoon.is

 

 
Borði

Síðustu athugasemdir

Hæsta meðaleinkunn

Síðast breytt

Mest skoðað


sundlaugar [at] sundlaugar.is - auglýsingar - tilgangur vefsins