sundlaugar.is
Borði

Forsíða
Álftaneslaug Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
(217 Atkvæði)

 

Sund, leikur og líkamsrækt - Íþróttamiðstöð Álftaness

Heimilisfang
Sundlaug Álftaness
Bjarnastaðir
225 Álftanes
Sími: 550 2350

Netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Tenglar: www.alftanes.is

Afgreiðslutími

Sumar opnun 1.maí-31.ágúst
 
Sund                   
Actic/Nautilus
Mán- Fös: 08:00-21:00
Mán – Fös: 06:30-22:30
Lau- Sun: 10:00-19:00
Lau – Sun:  10:00-19:00
  
Vetrar opnun 
Sund           
Actic/Nautilus
Mán-Fös: 06:30-21:00
Mán-Fös: 06:30-22:30
Lau-Sun: 10:00-18:00Lau-Sun: 10:00-18:00
  

Verð
0-5 ár: frítt
67 eldri frítt
Stakt gjald börn (6-16 ár): kr. 150
Stakt gjald fullorðnir: kr. 400
10 miða kort barna: kr. 1.100
10 miða kort fullorðnir: kr. 3.300
Árskort barna kr. 11.000
Árskort fullorðinna kr. 24.200
Leiga handklæði  kr. 350
Leiga sundföt  kr. 350
Tilboð - handklæði, sundföt kr. 650

 

Auka upplýsingar
Útisundlaug 25x12 metrar

Innisundlaug 12x7 metrar
Heitir pottar 2
Buslulaug 1
Gufubað
Vatnsrennibraut 85m löng, 10m há
Öldulaug NÝTT Á ÍSLANDI

Inni og útibúningsklefar
Sólbaðsaðstaða
Góð aðstaða fyrir fatlaða
 
 
Hin nýja Álftaneslaug býður viðskiptavinum sínum upp á bjart, hlýlegt og afslappað umhverfi en á sama tíma finna þeir sem sækja í leik og fjör þörfum sínum fullnægt.

Sundlaugar, heitir pottar og gufuböð
Innanhússlaugin er tólf sinnum átta metrar í opnu rými með útsýni yfir útisundlaugasvæðið. Þar er aðstaða fyrir foreldra með ung börn hvort sem er fyrir leik eða fyrstu sundtökin. 25 metra útilaug, 2 heitir pottar, buslulaug og gufuböð mynda svo útisvæði í fallegu umhverfi Álftaness.

Eina öldulaug landins og stærsta vatnsrennibrautin
Í sundlaugargarðinum er eina öldulaug landsins og sér börnum og fullorðnum fyrir skemmtilegum möguleikum í leik og fjöri. Þar er líka 10 metra há og 80 metra löng vatnsrennibraut.

Nautilus, fjölskyldu-heilsurækt
Fyrsta Nautilus heilsuræktin hér á landi var opnuð 1999 en núna eru stöðvarnar orðnar sjö.

Gönguleiðir, golf og útivera
Á Álftanesi finna allir gönguleiðir við sitt hæfi. Álftanes er m.a. þekkt fyrir mikið og fjölbreytt fuglalíf. Álftanesið er viðkomustaður farfugla og verðmætt varpland og þar gefst einstakt tækifæri til að fylgjast með komu farfugla að vori, varpi á sumrin, undirbúningi að langflugi á haustin og margvíslegum fjöru- og sjófuglum á vetrum. Leirur og aðrar fjörur á nesinu eru áhugaverðar og aðgengilegar á öllum tímum árs. Göngutúr í nágrenni við Bessastaði, sem tugþúsundir gesta heimsækj á hverju ári, er eftirminnilegur og hringur á golfvellinum er einnig frábær leið til útiveru. Að loknum göngutúr er svo fátt eins ljúft og sundsprettur eða afslöppun í heitum potti eða gufubaði í þægilegu umhverfi Álftaneslaugar.

 

Deila |
Athugasemdir
Skrifaðu athugasemd RSS
Nafn:
Efni:
 
:):grin;)8):p:roll:eek:upset:zzz:sigh:?:cry:(:x
 
Vinsamlega skrifaðu inn stafina sem eru á myndinni hér fyrir ofan
Edda  - GG laug   |2010-03-06 19:33:26
alltof góð sko laug allir að fara þangað þetta er ein af bestu laugum á íslandi ég elska þessa laug þetta er mjög góð laug fyrir fjölskyldur vinina og bara allt sakna þessarar laugar sko soo sooo mikið
KarenHuld  - opnunartímar   |2010-02-14 18:14:13
það er opið svo stutt á sunnudögum? er ekki hægt að hafa opið lengur? en annars er þetta æðisleg laug
eydís  - Álftaneslaugin   |2010-02-14 18:12:54
BESTA SUNDLAUG Á ÖLLU LANDINU! ALLIR VERÐA AÐ FARA ÞANGAÐ
thelmaósk  - hææ   |2010-01-03 23:39:36
hæb :') ég fór í þessa sundlaug
& mér finnst hún bara roooosa
ég hef bara komið þangað 2 vegna
þess að ég bý í keflavík :'D en
allavega þá er þetta skemmtilegasta
sundlaug sem ég hef farið í á
ævi minni. ég er komin með ógeð
af sundinu hérna í kef ! en
jab, vonandi kem ég fljótt aftur !


- thelmaherberts.
Emilía Eir Pálsdóttir  - góð laug   |2009-12-22 12:14:36
fór í sumar í laugina eftir að hafa verið á Símamótinnu fór oft í rennibrautina hún var æði og lýka öldulauginn, ég hvet svo alla til að fara að æfa fótbolta með Þór á Akureyri besta liðið

3.26 Copyright (C) 2008 Compojoom.com / Copyright (C) 2007 Alain Georgette / Copyright (C) 2006 Frantisek Hliva. All rights reserved."

 
Banner Campaign

Flöskuskeyti Póstlisti

Borði
Borði

Hæsta meðaleinkunn

Síðustu athugasemdir

Mest skoðað

Opnar fyrst/Loka síðast

 


sundlaugar [at] sundlaugar.is - auglýsingar - tilgangur vefsins