sundlaugar.is
Borði

Forsíða
Skemmtilegar sundlaugar á Akureyri og nágrenni

 

Sundlaug Akureyrar er fyrir alla fjölskylduna. Sundlaugarnar eru tvær. Á svæðinu er að finna tvær rennibrautir, busllaug, innilaug, fjóra heita potta, eimbað, gufubað, nuddstofa og fjölskyldugarð með vinsælum leiktækjum sem er opinn yfir sumartímann.

 

En það eru fleiri sundlaugar fyrir norðan. Hefurðu prófað sundlaugina í Grímsey? Einnig er í Hrísey ný og góð sundlaug fyrir alla aldurshópa með sérstakri barnalaug og heitum potti. Svo er það sundlaug Glerárskóla sem er innilaug með tvo heita nuddpotta, eina buslulaug og útiklefa.

 

Smelltu hér til að sjá heildaryfirlit

 

 
Sundsamband Íslands

 Sundsamband Íslands

 

Hefur þú áhuga á að keppa í sundi? Kíktu á www.sundsamband.is

 

 

 
Opnunartími um jól og áramót


23. desember, Þorláksmessa
24. desember, aðfangadagur
25. desember, jóladagur
26. desember, annar í jólum

Venjulegur opnunartími er hjá flestum sundlaugum á milli jóla og nýárs

31. desember, gamlársdagur
1. janúar, nýársdagur

Lesa meira...
 
Íslandsmeistaramót í 25m laug

 

Frá www.sundsamband.is:

 

Dagana 19. til 22 nóvember fer fram Íslandsmeistaramótið í 25m laug í Laugardalslauginni. Keppnin hefst á fimmtudeginum kl. 18.30 og lýkur á sunnudagskvöldinu.

ÍM-25 er jafnan eitt mikilvægasta mót ársins og flestir okkar bestu sundmanna stefna á góðan árangur á því frá því æfingar hefjast eftir sumarfrí. 

Á sunnudagskvöldinu fer fram uppskeruhátið Sundsamband Íslands á Grand Hotel Reykjavík þar sem valin verða sundmaður og sundkona ársins, veittur verður Hvatningarbikarinn, unglingaþjálfari og þjálfari ársins vera valdir ásamt dómara ársins.  Þá verða veitt verðlaun fyrir besta afrekið á mótinu í karla- og kvennaflokki.


Allar nánari upplýsingar veitir Ingigerður Einarsdóttir 7706066.

 
Sundaðstaða á Akranesi

 

Á Akranesi eru tvær sundlaugar, ein útilaug að Jaðarsbökkum og Bjarnalaug sem er innilaug.  Báðar eru notaðar undir kennslu fyrir grunnskólana, sundæfingar Sundfélags Akraness ásamt sundskóla og undbarnasundi.

 

Jaðarsbakkalaug er 25m útisundlaug ásamt 5 heitum pottum, sauna og vatnsrennibraut. Bjarnalaug er innilaug 12,5m ásamt heitum potti sem staðsettur er úti í laugargarði. Bjarnalaug er til útleigu fyrir hin ýmsu tækifæri svo sem afmæli, starfsmannapartý o.fl.

 
« FyrstaFyrri12345NæstaSíðasta »

Síða 1 af 5
Borði

Flöskuskeyti Póstlisti

Borði
Borði

Hæsta meðaleinkunn

Síðustu athugasemdir

Mest skoðað

Veðurspá Reykjavík

Light Drizzle Light Rain Cloudy Mostly Cloudy
7C 6C 5C 5C
Mið Fim Fös Lau

info [at] sundlaugar.is - auglýsingar - tilgangur vefsins