|
Sundvaka í Laugardalslaug |
|
Borgaryfirvöld hafa ákveðið að efna til sundvöku í Laugardalslauginni dagana 21-26 júlí næstkomandi. Á samráðsvettvanginum Betri Reykjavik kom fram sú hugmynd að hafa sólarhringsopnun í einni sundlaug í Reykjavík. Mikill stuðningur var við tillöguna og því ákváðu borgaryfirvöld að gera tilraun með sundvöku í Laugardalslaug í eina viku. Á sundvökunni verður Laugardalslaugin opin í fimm nætur frá og með miðvikudeginum 21. júlí frá kl 6.30 til mánudagsins 26. júlí til kl. 22.30. Gjald fyrir sundgesti á sundvöku er 1000 krónur en þess ber að geta að afsláttar- og árskort gilda. Börn yngri en 16 ára fá ekki aðgang á nóttunni nema í fylgd með fullorðnum og er það í samræmi við útivistarreglur barna í borginni. Borgaryfirvöld vonast til að sundlaugargestir noti þetta einstaka tækifæri sem nú gefst til þess að fara í sund á björtum sumarnóttum. Svo gæti farið, ef vel tekst til, að sundvakan yrði að árlegum viðburði. Rétt er að taka fram að öll meðferð áfengis er að venju stranglega bönnuð í lauginni. |