|
Haldið var upp á hinn árlega handklæðisdag í dag, 25. maí en dagurinn hefur verið haldið hátíðlegur síðan 2001 í minningu rithöfundarins Douglas Adams.
Adams skrifaði hinn vinsæla bókarflokk Hitchhikers Guide to the Galaxy um raunir puttaferðalanga í geimnum og er þar haldið fram að nytsamlegasti hlutur sem hver puttaferðalangur getur haft á sér er einmitt handklæði.
Adams lést hinn 11. maí 2001 og strax tveim vikum eftir varð þessi óformlegi hátíðisdagur, þar sem fólk er hvatt til þess að ganga um með handklæði, til og hefur vaxið að vinsældum síðan. |