|
Vatnaveröld-Sundmiðstöð verður lokuð frá kl. 19:00 miðvikudagskvöldið 30. júní 2010 vegna viðgerða á vatnslögnum. Gert er ráð fyrir að opna aftur kl. 12:00 fimmtudaginn 1. júlí 2010. |
|
Frá www.rvk.is:Ókeypis í sund í sumar fyrir börn og unglinga að 18 ára aldri.
Borgarráð samþykkti á fundi sínum í morgun að frá og með laugardeginum 19. júní - 31. ágúst næstkomandi yrði ókeypis í sund fyrir börn og unglinga að 18 ára aldri.
Jón Gnarr, borgarstjóri, segir þessa ákvörðun vera í samræmi við samstarfsyfirlýsingu Besta flokksins og Samfylkingarinnar en þar er þetta á lista yfir fyrstu verk nýs meirihluta. „Blautur borgari er glaður borgari, ” segir Jón Gnarr.
Íþrótta- og tómstundasvið Reykjavíkur rekur sjö sundlaugar, Árbæjarlaug, Breiðholtslaug, Grafarvogslaug, Kjalarneslaug, Laugardalslaug, Sundhöll Reykjavíkur og Vesturbæjarlaug. Ungmenni á öllum aldri ættu því að geta notið þess að fara frítt í sund í sundlaug sem næst sínu hverfi. |
|
Sundlaugarpartý á 17. júní í sundlaug Snæfellsbæjar, Ólafsvík. Árgangar 2002-2000 mæting kl. 18:00-19:15 Árgangar 1999-1997 mæting kl. 19:30-20:45 Árgangar 1996-1994 mæting kl. 21:00-22:15
Frítt inn og þeir sem ætla ekki í sund mæti í náttfötum eða slopp! |
|
Félagsheimilið Hlaðir Félagsheimilið Hlaðir er rólegur og fallegur staður við norðanverðan Hvalfjörð, um 45 mín akstur frá Reykjavík og 20 mín akstur frá Akranesi.
Sundlaugin er austan við félagsheimilið Hlaðir og eru búningsklefar og vatnsgufubað í kjallara félagsheimilisins auk útiklefa. Sundlaugin er 16,67 x 8 metrar og við hana er einnig barnavaðlaug með rennibraut og tveir heitir pottar. Meira.. |
|
|
|
Síða 3 af 10 |