sundlaugar.is
Borði

Forsíða
Sundlaugin Versölum Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
(142 Atkvæði)

 

Sundlaugin Versölum, Íþróttamiðstöðin Versalir, Íþróttafélagið Gerpla, Salalaug

Heimilisfang
Versölum 3,
Kópavogi
Sími: 570-0480

Netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Tenglar: sund.kopavogur.is/versalir/, www.kopavogur.is

Afgreiðslutími
Þjónustutími frá 1. september 2010
Mánudaga - fimmtudaga kl. 06:30 - 21:00
Föstudaga kl. 06:30 - 20:00
Laugar- og sunnudaga kl. 10:00 - 19:00

Helgidagar samkvæmt auglýsingum og upplýsingum hér á vefnum.
Actic heilsuræktin er opin til kl. 22 mánudaga til fimmtudaga, en aðra daga á sama tíma og sundlaugin.
Nánari upplýsingar á heimasíðu

 

Verð

Gjaldskrá sundlauga Kópavogsbæjar
Gildir frá 1. febrúar 2010
     
Börn á aldrinum 6-17 ára    
Stakt gjald Kr. 120 Kr. 120
10 punkta kort Kr. 900 Kr. 90
30 punkta kort Kr. 2.250 Kr. 75
60 punkta kort Kr. 3.600 Kr. 60
Árskort Kr. 7.500  
Punktakort gilda í 2 ár frá útgáfudegi
Fullorðnir á aldrinum 18-66 ára    
Stakt gjald Kr. 350 Kr. 350
10 punkta kort Kr. 3.000 Kr. 3.00
30 punkta kort Kr. 7.000 Kr. 233
60 punkta kort Kr. 10.500 Kr. 175
Árskort Kr. 21.000  
Árskort námsmanna Kr. 17.500  
Punktakort gilda í 2 ár frá útgáfudegi
Eldri borgarar 67 ára og eldri    
Stakt gjald Kr. 120 Kr. 120
10 punkta kort Kr. 900 Kr. 90
30 punkta kort Kr. 2.250 Kr. 75
60 punkta kort Kr. 3.600 Kr. 60
Árskort Kr. 7.500  
Punktakort gilda í 2 ár frá útgáfudegi
Leiga sundföt og handklæði Kr. 500  
Árskort til félaga- og fyrirtækja Fullorðnir Börn og eldri borgarar
Við kaup á 1 -19 árskortum Kr. 21.000 Kr. 7.500
Við kaup á 20 árskortum Kr. 19.000 Kr. 6.750
Við kaup á 100 árskortum Kr. 17.000 Kr. 6.000
Við kaup á 200 árskortum Kr. 14.000 Kr. 5.250
Við kaup á 400 árskortum Kr. 12.000 Kr. 4.500
Við kaup á 600 árskortum Kr. 12.000 Kr. 3.750
Við kaup á 800 árskortum Kr. 8.500 Kr. 3.000
     
Skilagjald á rafrænu korti er kr. 2000, sé það valið.
"Veittur er afsláttur frá stöku gjaldi ef 3 eða fleiri gjaldkyldir
einstaklingar koma saman í sund."

Þjónusta og aðstaða

 

Auka upplýsingar
Aðalsundlaugin er 25x15m að stærð og dýptin er frá 100 til 160 sm. Í sundlauginni eru 6 keppnisbrautir afmarkaðar með brautalínum. Oftast eru fjórar þeirra uppi, ætlaðar fyrir skólasund, sundiðkun almennings og sundæfinga. Á almenningstímum eru tvær brautir ætlaðar til leikja og sundiðkunar.

Iðulaugin er ein af aðalsmerkjum Versala laugarinnar. Þar er að finna vatns og loftnuddsstúta fyrir kálfa, mjóbak/mjaðmir og bak/herðar. Í pottinum eru einnig þrír legubekkir með heilnuddi með upphituðu lofti.

Innilaugin er 16,67x10m að stærð. Dýpt hennar er frá 0,75 - 0,90 sm. Hitstig laugarinnar er 33°- 34° og lofthitin í laugarsalnum er um 27°. Laugin er því tilvalin fyrir ungabörn og yngri sundgesti. Í laugarsalnum og í búningsklefum er að finna skiptiborð fyrir ungabörn.

Við líkjum rennibrautinni okkar við fljót. Hún hefur þá sérsstöðu að við efri enda hennar er lítil laug/hylir sem er 34° heitur. Úr hylnum rennur fljótið niður brautina og endar í straumfljóti, sem rennur í kringum eyju sem er í lendingarlauginni. Þannig berst notandinn aftur að tröppum sem lyggja upp úr fljótinu.

Í mannvirkinu er að finna tvo heita potta.
Potturinn sem er næst útgöngudyrunum er um 38°, en  heitari potturinn er um 42°.

Í Vatnsorgelinu eru 40 vatnsstútar.
Vatnið sprautast upp um stútana með misjöfnum krafti og því ná bunurnar mishátt upp í loftið.

 

Deila |
Athugasemdir
Skrifaðu athugasemd RSS
Nafn:
Efni:
 
:):grin;)8):p:roll:eek:upset:zzz:sigh:?:cry:(:x
 
Vinsamlega skrifaðu inn stafina sem eru á myndinni hér fyrir ofan
Birgir   |2010-04-06 19:20:24
Mjög góð laug og fín gufa. En fossarnir í stóra pottinum eru gjörsamlega óþolandi. Í hvert einasta skipti sem ég hef farið er einhver sem fer þar undir og þá sprautast á alla í kring. FÁRÁNLEGT.
Ásta  - Staðsetning nuddstútana   |2010-02-24 15:59:40
Vil bara benda fólki á að staðsetning nuddstútana er frábær til að örvar mjúklega nálastungupunkta til að bæta orkuflæði líkamans. Það er frábært að hafa aðgang að svona góðri heilsulind. Og vil ég þakka starfsfólkinu fyrir góða þjónusu og hve það er alltaf hreint hjá þeim í klefunum.
Syndandi  - Ofmetin   |2010-02-08 12:14:22
Fullkomlega ofmetin laug. Búningsklefarnir eru hræðilegir. Efnið á botni innilaugarinnar er bæði sleipt og með hvössum brúnum. Greinilega var kastað til höndum við hönnun og frágang.
Anoniem   |2010-01-19 08:25:29
Allt tal um drukknun vegna þessara yndislegu nuddstúta er náttúrulega bara móðursýki. Stútarnir eru til að nota þá og þeir virka frábærlega. Það fólk sem eru að láta vatnsgusurnar frá þeim fara í taugarnar á sér ættu kannski bara ekkert að vera þarna.
synda  - Fossarnir   |2009-07-30 12:50:04
Með nuddfossana þá er málið frekar það að fólk kann ekki að nota þá eða notar þá bara af stakri ókurteisi .. ég hef oft lent í því að flýja pottinn af því fólk stendur í miðjum fossunum og skvettir og splattar vatni yfir allan pottinn. Ekki spurning um ,,smáskettur" heldur liggur manni í alvöru við drukknun - og undarleg hugmynd að segja öðrum bara að fara í aðra potta svo tveir ruddar geti skvett vatni út um allt. Það er ekkert mál að nota þessa fossa þannig að aðrir geti líka verið í pottinum! Bara standa aðeins neðar þannig að bunan lendi á manni rétt fyrir ofan yfirborðið og muna að maður er kannski ekki alveg einn í heiminum! Annars fínasta laug nema rennibrautin hálfglötuð.

3.26 Copyright (C) 2008 Compojoom.com / Copyright (C) 2007 Alain Georgette / Copyright (C) 2006 Frantisek Hliva. All rights reserved."

 
Borði

Flöskuskeyti Póstlisti

Borði
swimming in iceland on Facebook

Hæsta meðaleinkunn

Síðustu athugasemdir

Mest skoðað

Opnar fyrst/Loka síðast

 


sundlaugar [at] sundlaugar.is - auglýsingar - tilgangur vefsins