| Álftaneslaug |
|
|
|
Sund, leikur og líkamsrækt - Íþróttamiðstöð Álftaness Heimilisfang Tenglar: www.alftanes.is Afgreiðslutími
Verð
Auka upplýsingar Innisundlaug 12x7 metrar Heitir pottar 2 Buslulaug 1 Gufubað Vatnsrennibraut 85m löng, 10m há Öldulaug NÝTT Á ÍSLANDI Inni og útibúningsklefar Sólbaðsaðstaða Góð aðstaða fyrir fatlaða Hin nýja Álftaneslaug býður viðskiptavinum sínum upp á bjart, hlýlegt og afslappað umhverfi en á sama tíma finna þeir sem sækja í leik og fjör þörfum sínum fullnægt. Sundlaugar, heitir pottar og gufuböð Innanhússlaugin er tólf sinnum átta metrar í opnu rými með útsýni yfir útisundlaugasvæðið. Þar er aðstaða fyrir foreldra með ung börn hvort sem er fyrir leik eða fyrstu sundtökin. 25 metra útilaug, 2 heitir pottar, buslulaug og gufuböð mynda svo útisvæði í fallegu umhverfi Álftaness. Eina öldulaug landins og stærsta vatnsrennibrautin Í sundlaugargarðinum er eina öldulaug landsins og sér börnum og fullorðnum fyrir skemmtilegum möguleikum í leik og fjöri. Þar er líka 10 metra há og 80 metra löng vatnsrennibraut. Nautilus, fjölskyldu-heilsurækt Fyrsta Nautilus heilsuræktin hér á landi var opnuð 1999 en núna eru stöðvarnar orðnar sjö. Gönguleiðir, golf og útivera Á Álftanesi finna allir gönguleiðir við sitt hæfi. Álftanes er m.a. þekkt fyrir mikið og fjölbreytt fuglalíf. Álftanesið er viðkomustaður farfugla og verðmætt varpland og þar gefst einstakt tækifæri til að fylgjast með komu farfugla að vori, varpi á sumrin, undirbúningi að langflugi á haustin og margvíslegum fjöru- og sjófuglum á vetrum. Leirur og aðrar fjörur á nesinu eru áhugaverðar og aðgengilegar á öllum tímum árs. Göngutúr í nágrenni við Bessastaði, sem tugþúsundir gesta heimsækj á hverju ári, er eftirminnilegur og hringur á golfvellinum er einnig frábær leið til útiveru. Að loknum göngutúr er svo fátt eins ljúft og sundsprettur eða afslöppun í heitum potti eða gufubaði í þægilegu umhverfi Álftaneslaugar.
3.26 Copyright (C) 2008 Compojoom.com / Copyright (C) 2007 Alain Georgette / Copyright (C) 2006 Frantisek Hliva. All rights reserved." |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Flöskuskeyti Póstlisti |
|











