sundlaugar.is
Borði

Forsíða
Áheitasund ÍRB í samvinnu við Björgunarsveitina Suðurnes

 

Frá www.ljosanott.is:

Elstu sundmenn ÍRB (Keflavíkur og Njarðvíkur) munu synda frá Víkingaheimum að höfninni í Keflavik. Björgunarsveitin Suðurnes verður sundmönnum til halds og trausts og passar upp á að fyllsta öryggis sé gætt. Sundmennirnir munu ganga í hús nokkru fyrir sundið og safna áheitum og eru bæjarbúar beðnir um að taka vel á móti þeim.

Föstudagur: Kl. 15:00 - 17:00, Frá Innri Njarðvík til Keflavíkur

Sjá meira á www.ljosanott.is

 
Bláa lónið flæðir yfir bakka sína

 

Frá visir.is:

Annaðhvort verður fráveitulögn til að koma vatninu til sjávar lögð ofan jarðar eða grafin í jörðu. Framkvæmdin mun kosta um 500 miljónir króna.

Lésa meira á visir.is

 

 
Öldulaug og vaðlaug í Álftaneslaug lokaðar

 

Öldulaug og vaðlaug í Álftaneslaug verða lokaðar frá og með 26. ágúst og næstu 2-3 vikur vegna viðgerða. Sjálf sundlaugin, heitir pottar, innilaug, rennibraut, gufuböð o.fl. verða opin eftir sem áður.

 

 
Breyttur opnunartími á Kirkjubæjarklaustri

 

Nýr vetraropnunartími er tekinn í gildi í Íþróttamiðstöðinni á Kirkjubæjarklaustri. Mánudagar-föstudagar 15:30-19:00, laugardagar 11:00-15:00 og Þriðjudaga-föstudaga verður hægt að komast í tækjasalinn frá kl 9:00 á morgnana.

 

 
Leikjagarðurinn lokar tímabundið vegna lagfæringa

 

Leikjagarðurinn í Vatnaveröld/ Sundmiðstöð í Reykjanesbæ verður lokaður vegna lagfæringa frá og með mánudeginum 16. ágúst. Gert er ráð fyrir að hann opni aftur eftir viku. 25 metra útilaugin og setlaugar og gufubað er samt sem áður opin.

50 metra innilaugin verður tilbúin eftir viðgerðir miðvikudaginn 18. ágúst.

 

 
« FyrstaFyrri12345678910NæstaSíðasta »

Síða 1 af 10
Borði

Flöskuskeyti Póstlisti

Borði
Borði

Hæsta meðaleinkunn

Síðustu athugasemdir

Mest skoðað

Opnar fyrst/Loka síðast

 


sundlaugar [at] sundlaugar.is - auglýsingar - tilgangur vefsins